„Hjart­a mitt græt­ur í hvert skipt­i sem nýr ein­st­ak­l­ing­ur er tek­inn af lífi á sam­­fé­l­ags­­miðl­um“

Leikarinn og leik­stjórinn Björk Jakobs­dóttir sendi ný­verið frá sér langan pistil á Face­book síðu sinni þar sem hún talar gegn slaufunar­menningu eða „cancel culture“.

„Elsku sam­landar. Ég skrifa eftir­farandi orð vitandi að það getur kostað mig út­skúfun og bann­færingu hjá á­kveðnum hópi. Hjarta mitt grætur í hvert skipti sem nýr ein­stak­lingur er tekinn af lífi á sam­fé­lags­miðlum,“ segir hún meðal annars í löngum pistli sem er kominn með hátt í tvö þúsund „like“.

„Við erum öll mann­leg og ekkert okkar er full­komið. En af ein­hverjum á­stæðum gerum við þá kröfu í dag; á tímum sam­fé­lags­miðla, að enginn skuli nokkurn tímann stíga feil­spor. Hvort sem það er að tjá ranga skoðun, segja ó­við­eig­andi brandara eða gera eitt­hvað sem telst kyn­ferðis­leg á­reitni,“ segir hún og heldur því fram að henni líði oft eins og hún sé komin í ung­linga­deild aftur þar sem vin­sæla liðið á­kveður hvern á að leggja í ein­elti.

Hún segir að unga kyn­slóðin stjórni oft um­ræðunni „Stundum vildi ég bara að þetta unga bar­áttu­fólk fengi lánaða smá lífs­reynslu og um­burða­lyndi frá okkur sem eldri erum,“ segir hún og heldur á­fram “Því ég veit að flest ung­menni hafa ekki séð alla lífsins liti – og sjá hlutina stundum í svörtu eða hvítu. Eftir tölu­verða lífs­reynslu veit ég að hlutirnir eru sjaldnast svartir eða hvítir heldur eru alls­konar gráir tónar til líka.“

Þá segir hún að það er ekki hægt að setja allar upp­lifanir undir sama hattinn „Mis­munandi upp­lifun, mis­skilningur, sam­skipta­leysi og kannski ó­við­eig­andi hegðun sem er ekki nauðgun. Við megum ekki gjald­fella al­var­lega of­beldis­glæpi með því að kalla allt nauðgun eða kyn­ferðis­af­brot.“

Pistilinn í heild má sjá hér fyrir neðan.

Fleiri fréttir