Hildur Lilliendahl, feminískur aktívisti og kynjafræðinemi, spyr þá sem telja að Þórir Sæmundsson leikari hafi gert hreint fyrir sínum dyrum hvort það muni afstöðu sína þegar Ólafur Skúlason, þáverandi biskup, ræddi ásakanir á hendur sér í Kastljósi árið 1996.
Í skoðanagrein sem Hildur skrifar á Vísi.isí dag fer hún yfir þátt Kveiks þar sem rætt var við Þóri. Í þættinum ræddi hann um meinta útskúfun af atvinnumarkaði sem hann hafi mátt þola síðustu fjögur ár meðal annars fyrir að senda konum myndir af kynfærum sínum. Þátturinn hefur vakið hörð viðbrögð í samfélaginu en einnig hafa margir tekið undir með Þóri og talað um það á samfélagsmiðlum að hann hafi í viðtalinu gert hreint fyrir sínum dyrum og eigi skilið fyrirgefningu.
Hildur beinir orðum sínum að þeim sem lýst hafa þeirri skoðun á Facebook og á kaffistofum landsins.
„Ég get ekki annað en spurt ykkur sem hafið tapað ykkur á Facebook og kaffistofum yfir því að þessar fimmtán ára gálur eigi nú allt illt skilið og þessi gulldrengur hafi gert hreint fyrir sínum dyrum; munið þið eftir þessu? Þegar biskup Íslands mætti í drottningarviðtal hjá RÚV fyrir aldarfjórðungi, hvar stóðuð þið þá og hvernig hefur sagan farið með þá afstöðu sem þið tókuð þá vikuna eða það árið?“
Hildur segir að í þættinum hafi hann viðurkennt að hafa farið yfir mörk samstarfskvenna. „Aðspurður jánkaði Þórir því að hafa ekki viljað flytja burt vegna þess að í því myndi felast einhverskonar viðurkenning á sekt. Með öðrum orðum; hann vill ekki gangast við sekt. Enda sagði hann sjálfur að samfélagið sem hann býr í sé bara klikkað af því að hann fær ekki vinnu við þjónustu- eða umönnunarstörf,“ segir Hildur.
„Ekkert af ofangreindu lýsir manni sem sýnir iðrun og eftirsjá. Þetta lýsir manni sem finnst hann eiga heimtingu á því sem honum hentar óháð því hvað kann að leynast í fortíðinni hans.“
Hún segir að þátturinn hafi valdið umtalsverðum skaða. „Ekki bara fyrir þolendur viðmælandans (ýmist þá sem minnst var á, eða þau sem ekki var fjallað um) heldur fyrir þolendur kynbundins ofbeldis almennt.“
Hún biðlar til fólks að hugsa sig um. „Rifjum upp viðtalið við Ólaf Skúlason biskup frá árinu 1996. Þegar þetta nýjasta viðtal verður skoðað í ljósi sögunnar, hvaða afstöðu hefðir þú viljað hafa tekið, svona eftir á að hyggja?“