Hersir ekki sáttur: Fékk bréf út af færslu sem hann lækaði - „Ég kann ekki við slíkt eftirlit“

„Kæru vinir, mig langar að segja ykkur örstutt frá starfsháttum Bankasýslunnar sem ég hef fengið að kynnast á undanförnum dögum.“

Fréttablaðið greindi frá þessu.

Svona hefst Facebook færsla Hersirs Sigurgeirssonar, dósents í fjármálum við Háskóla Íslands, en hann var fenginn af Ríkisendurskoðanda til þess að vera til ráðgjafar við úttekt á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

„Ég ákvað að verða við beiðninni, enda með viðeigandi þekkingu og reynslu vegna starfa minna á fjármálamarkaði og við Háskólann, og hef unnið að verkefninu undanfarnar vikur,“ segir Hersir, en Bankasýslan, Fjármálaráðuneytið og fleiri sem úttektin tekur til vissu af ráðningu hans.

Hann segir að í fyrradag barst honum símtal frá Ríkisendurskoðanda, sem hafði fengið bréf frá Bankasýslunni um ferðir Hersis á samfélagsmiðlum.

„Í fyrradag fékk ég svo símtal frá ríkisendurskoðanda sem sagði mér að honum hefði borist bréf frá Bankasýslunni með ábendingu um að ég hafi sett “like” á tiltekna færslu á fb sem varðaði útboðið. Bréfið var alls þrjár síður, sent af starfsmanni Bankasýslunnar og undirritað rafrænt af forstjóra hennar,“ segir Hersir á Facebook og er ekki sáttur við að það sé verið að fylgjast með honum á samfélagsmiðlum.

„Ég kann ekki við slíkt eftirlit. Það er alvarlegt þegar starfsmenn ríkisstofnunar telja eðlilegt að leggjast í rannsókn á skoðunum ráðgjafa óháðra úttektaraðila og gera það á jafn hæpnum og huglægum forsendum og hér birtast.“

Hann segist ekki hafa aðra skýringu á bréfaskrifunum en að þau verði notuð til þess að kasta rýrð á úttekt Ríkisendurskoðunar ef Bankasýslan er ekki sátt við niðurstöðurnar.

„Það hugnast mér ekki og því ákvað ég í gær að ljúka aðkomu minni að úttektinni.“

Fleiri fréttir