Herra Hnetusmjör aflýsir mótmælum: Fer allt í steik án innleggs frá Þórólfi

„Þetta er mjög mikilvæg breyting í frumvarpið. Það hefur sýnt sig að um leið og ríkisstjórnin hefur reynt að taka ákvarðanir sjálf án innleggs frá Þórólfi þá fer allt í steik,“ segir tónlistarmaðurinn Herra hnetusmjör um frumvarp dómsmálaráðherra sem samþykkt var í nótt og þær breytingar sem voru gerðar á því til að tryggja að sóttvarnalæknir hefði aðkomu að takmörkunum sem eru settar á ferðamenn.

„Almannahagsmunir eru númer eitt og ég tel að með þessari skýru breytingu verða þeir hafðir að leiðarljósi,“ segir Herra hnetusmjör í tilkynningu á viðburði fyrir mótmæli sem hann hafði skipulagt í vikunni til að krefjast hertari aðgerða á landamærin vegna COVID-19.

Hann segir að í kjölfar þessara breytinga telji hann ekki „að svo stöddu“ þörf á að halda mótmæli og hefur því aflýst þeim.

Mótmælin áttu að vera næsta sunnudag við Keflavíkurflugvöll.

Tónlistarmaðurinn birti þessa tilkynningu á viðburði mótmælanna í dag.
Skjáskot/Facebook

Fleiri fréttir