Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði í Víglínunni í dag á Stöð 2 að það væri verið að vinna í því að herða eftirlit með þeim sem eru í sóttkví hér eftir að hafa komið inn um landamærin.
Hún sagði að það væri bæði verið að hringja í fólk og kanna hverjar aðstæður þeirra eru til að vera í sóttkví.
„Þannig þetta erum við allt að gera og við væntum þess að þetta skili árangri,“ sagði Katrín Jakobsdóttir í Víglínunni í dag.
Greint hefur verið frá því að smitið sem greindist á leikskólanum Jörfa og varð til þess að allt að tíu starfsmenn eru smitaðir tengist sóttkvíarbroti. Greint var frá því fyrr í dag að smitið er talið hafa komið til landsins um mánaðarmótin með einstaklingi sem ekki virti sóttkví eftir landamæraskimun.