Embætti héraðssaksóknara hefur fengið mál fótboltakappana Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar á sitt borð, eftir að lögreglan lauk rannsókn á málinu.
Kæra hafði verið lögð fram gegn þeim á síðasta ári, en þeir eru sagðir hafa brotið kynferðislega á íslenskri konu í Kaupmannahöfn, eftir landsliðsverkefni árið 2010.
Málið hafði verið í vinnslu hjá lögreglunni, en hún lauk rannsókn sinni á málinu fyrir stuttu síðan. Bæði Aron og Eggert hafa neitað sök í málinu.
Nú hefur héraðssaksóknari tekið við málinu og metur embættið hvort þeir Aron og Eggert verði ákærðir eða hvort málið falli niður.
Aron Einar leikur með Al-Arabi í Katar og Eggert Gunnþór spilar hér á landi með FH.