Vigdís Hauksdóttir var eini fulltrúi umhverfis- og heilbrigðisráðs Reykjavíkur sem hafnaði beiðni um leyfi til hænsnahalds á heimili í Skerjafirði. Kemur þetta fram í Fréttablaðinu í dag.
Fuglaflensa hefur verið staðfest á Íslandi og Vigdís telur að það sé verið að bjóða hættunni.
Leyfisbeiðnin um að halda fjórar hænur var lögð fyrir ráðið í vikunni ásamt samþykki frá nágrönnum og Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Hún var samþykkt með sex atkvæðum fulltrúa Vinstri grænna, Samfylkingarinnar, Pírata og Sjálfstæðisflokksins. Vigdís greiddi atkvæði á móti afgreiðslunni í ljósi stöðu heimsfaraldursins.
„Það er mjög óábyrgt að samþykkja þessa tillögu. Nú geisar skæð fuglaflensa í landinu og þegar hefur þurft að drepa hænur á Suðurlandi. Hér er verið að bjóða hættunni heim í að viðhalda þessum bráðhættulega sjúkdómi í landinu. Í raun ríkir neyðarástand í landinu vegna sjúkdómsins, “ kom meðal annars fram í bókun Vigdísar.