Fjölskyldufaðir á Vesturlandi hreppti 110 milljóna vinning Happdrættis Háskóla Íslands. Fram kemur í tilkynningu að hann hafi verið miðaeigandi í áratugi. Um er að ræða stærsta vinning í sögu HHÍ en ekki hafa fleiri miðar selst í happdrættið í aldarfjórðung.
„Upp úr pottinum kom fjölskyldufaðir á Vesturlandi sem er búinn að vera dyggur miðaeigandi til áratuga. Þetta er sennilega ein stærsta jólagjöf sem hægt er að hugsa sér – 110 milljónir króna og það skattfrjálsar,“ segir Úlfar Gauti Haraldsson, sölu- og markaðsstjóri Happdrættis Háskóla Íslands, í tilkynningu.
Mikið hefur verið að gera hjá HHÍ alla vikuna en þau hafa að sögn Úlfars Gauta varla haft undan að selja miða í happdrættið.
Fjölskyldufaðirinn er þó ekki sá eini sem hefur góða ástæðu til að gleðjast í kvöld því rúmlega 4.200 miðaeigendur skipta með sér rúmum 127 milljónum í skattfrjálsa vinninga. Ef því er deilt á milli þeirra allra jafnt er það um 30 þúsund á mann.
„Miðasalan fór langt fram úr okkur björtustu vonum. Við vitum að stóri vinningurinn var vissulega að trekkja að en fólk er ekki síður að kaupa miða til að styðja við uppbyggingu Háskóla Íslands. Hagnaðurinn af happdrættinu rennur allur í uppbygginguna og happdrættið hefur nú þegar fjármagnað á þriðja tug bygginga á háskólasvæðinu. Vonandi verða þær mun fleiri á næstu áratugum enda leggja þær grunninn að því stórkostalega starfi sem unnið er í Háskólanum,“ segir Úlfar Gauti.