Íslandsbankaskýrslunni var lekið í gærkvöld til nokkurra fjölmiðla. Fjallað var um lekann í Morgunblaðinu í dag.
Þá heldur Morgunblaðið því fram að skýrslan sé í raun ekki eins mikill áfellisdómur og margir bjuggust við, þrátt fyrir að ríkisendurskoðun setji út á gríðarlega margt við söluna.
Blaðamaðurinn Helgi Seljan segir að frétt Morgunblaðsins sé einhverskonar lágpunktur í íslenskri blaðamennsku. „Hér er kominn einhvers lags „milestone” í íslenskri fjölmiðlun.“ skrifar hann á Twitter.
Helgi bendir á að í frétt Morgunblaðsins sé tekið fram að miðillinn hafi ekki skýrsluna undir höndum, en leyfi sér þrátt fyrir það að túlka hana eins og sér sýnist.
„Skýrsla sem fjölmiðill hefur ekki séð túlkuð sem „ósigur” sumra. Og ranglega fyllyrt að „þingnefndir” deili gagnrýni með ráðherra og Sýslumönnum hjá skýrsluhöfundum.“
Helgi býr til nýtt hugtak um það sem átti sér stað: „Svokölluð blindtúlkun, er nýtt konsept; fætt.“
Hér er kominn einhvers lags „milestone” í íslenskri fjölmiðlun. Skýrsla sem fjölmiðill hefur ekki séð túlkuð sem „ósigur” sumra. Og ranglega fyllyrt að „þingnefndir” deili gagnrýni með ráðherra og Sýslumennum hjá skýrsluhöfundum.
— Helgi Seljan (@helgiseljan) November 14, 2022
Svokölluð blindtúlkun, er nýtt konsept; fætt. pic.twitter.com/aGdcCIb7fP