Helgi Áss kemur Jordan Peterson til varnar: Segir Snorra hafa verið óvæginn

Lögmaðurinn og skákmeistarinn Helgi Áss dregur ummæli sem fjölmiðlamaðurinn Snorri Másson lét frá sér í viðtali við kanadíska sálfræðinginn Jordan Peterson í efa og segir að allir megi hafa skoðun á málefnum trans fólks. Kemur þetta fram í pistli Helga í Morgunblaðinu í dag.

„Fyr­ir skömmu var tekið sjón­varps­viðtal við kanadíska sál­fræðing­inn Jor­d­an Peter­son í þætt­in­um Íslandi í dag á Stöð 2. Fjöl­miðlamaður­inn sem tók viðtalið birti um­fjöll­un um það á vis­ir.is, hinn 26. júní sl., og setti m.a. fram eig­in fyr­ir­vara við skoðanir sál­fræðings­ins á kyn­leiðrétt­ing­araðgerðum á ein­stak­ling­um und­ir lögaldri. Því tengt lét fjöl­miðlamaður­inn m.a. eft­ir­far­andi um­mæli falla: „Stund­um eru kyn­horm­óna­bæl­andi meðferðir notaðar til að styðja við trans ung­menni enda er kom­in löng reynsla á notk­un slíkra lyfja við meðferð annarra hópa. Áhrif­in þar eru aft­ur­kræf.“

Helgi ítrekar að hann sé ekki læknisfræðilega menntaður maður, en sér ástæðu til þess að draga ummæli Snorra í efa.

„Sem dæmi er í Svíþjóð löng reynsla af meðhöndl­un trans ung­menna og hinn 22. fe­brú­ar sl. kom út skýrsla op­in­bers rann­sókn­ar­ráðs í mál­efn­um tengd­um heilsu og vel­ferð (s. Socialstyr­el­sen) en á sænsku ber skýrsl­an heitið Stöd, utredn­ing och horm­on­behand­ling vid köns­in­kongr­u­ens hos barn och ungdom­ar. Hver var helsta niðurstaða sænsku skýrsl­unn­ar? Sam­an­dregið var helsta niðurstaða skýrsl­unn­ar eft­ir­far­andi: Áhætt­an af notk­un kyn­horm­óna­bæl­andi meðferða í til­viki ung­menna er meiri en mögu­leg­ur ávinn­ing­ur af slíkri meðferð.“

Helgi segir að samkvæmt sænsku skýrslunni eigi aðeins að bjóða upp á kynhormónabælandi meðferð í undantekningartilvikum og segir að niðurstaðan sé reist á þremur meginþáttum.

„Í fyrsta lagi var talið að á skorti að fyr­ir hendi væru full­nægj­andi vís­inda­leg­ar sann­an­ir fyr­ir virkni og ör­yggi þess­ara meðferða. Í öðru lagi hef­ur ný þekk­ing rutt sér til rúms sem bend­ir til þess að ung­menn­um get­ur snú­ist hug­ur til kyn­leiðrétt­ing­ar. Í þriðja lagi þykir óvissa fylgja aukn­um fjölda ung­menna sem sækj­ast eft­ir því að hefja kyn­leiðrétt­ing­ar­ferli, aukn­ing sem er sér­stak­lega mik­il á meðal ung­menna sem eru við fæðingu skráð kven­kyns (s. kön kvinna; e. female).“

Helgi spyr sig hvaða ályktun má draga af þessu.

„Að mínu mati á sam­fé­lagið að tryggja um­gjörð um mál­efni trans­fólks sem er í senn vönduð og laus við for­dóma. Á hinn bóg­inn er eðli­legt að radd­ir efa­semda fái að heyr­ast um viður­hluta­mik­il lækn­is­fræðileg inn­grip í líf ein­stak­linga und­ir lögaldri sem miða að því að und­ir­búa þá fyr­ir kyn­leiðrétt­ing­araðgerðir.“

Helgi segir að allir megi hafa skoðun á slíku viðfangsefni, einnig Jordan Peterson.

„Núna kann að vera eðli­legt að fjöl­miðlar flaggi fyr­ir­vör­um við skoðunum sem viðmæl­end­ur þeirra setja fram. Vænt­an­lega er þá sann­gjarnt að slík­ir fyr­ir­var­ar séu reist­ir á traust­um grund­velli. Svo virðist hins veg­ar ekki vera í því til­viki sem hér hef­ur verið tekið til um­fjöll­un­ar.“

Fleiri fréttir