Hegðun Ís­lendinga á veitinga­stað til skammar: „Stelpurnar í af­greiðslunni gatu ekkert í þessu gert“

Svangir pizzuunnendur í Lindunum gengu margir út úr útibúi Pizzunnar með þjósti vegna seinkana við afgreiðslu í kvöld. Þótti sumum nóg um viðbrögð viðskiptavinanna.

„Ástandið á Pizzunni lindunum áðan,“ sagði einn viðstaddra í færslu á Twitter-síðu sinni. „Allt i skrúfunni bókstaflega. Margir sem löbbuðu út brjálaðir og einhverjir miðaldra kallar dónalegir við stelpurnar í afgreiðslunni sem gátu ekkert að þessu gert. Önnur þeirra var líklega 16-18 ára og var alveg búin á því eftir dónalega kúnna.“

Margir kannast vafalaust við leiðindi af því að bíða lengi í röð þegar þjónustu seinkar en þó eru því vafalaust takmörk sett hvað geta talist ásættanleg viðbrögð. „Þú þarft ekki að vera rasshaus og með dónaskap við starfsólkið þó að pizzunni þinni seinki, assface!“ skrifar Twitter-notandinn.

Fleiri fréttir