Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Hjalta sem veiktist alvarlega

Hjalti Búi Önnu­son er 36 ára og fjögurra barna faðir. Ný­lega lenti hann í al­var­legum veikindum, en hann fékk streptó­kokka­sýkingu í vöðva sem leiddi til fjöl­líf­færa­bilunar. Söfnun fyrir fjöl­skyldu Hjalta hefur verið sett á stað, en næstu fimm mánuði mun Hjalti vera í endur­hæfingu á Land­spítalanum, á­samt því að unnusta hans, Edda Bára Höskulds­dóttir er í fæðingar­or­lofi, en parið eignaðist ný­verið sitt annað barn saman.

Þær Birna Björns­dóttir og Ágústa Odds­dóttir, vin­konur parsins settu söfnunina á stað, en Birna segir að þetta hafi verið mikið á­fall og að á­lagið á fjöl­skyldunni sé gífur­legt.

„Hjalti fer í vinnuna á laugar­degi og meiðir sig í vinnunni. Hann kemur heim og er eitt­hvað slappur og heldur að hann sé með flensu. Í kjöl­farið er hann með hita næstu daga. Svo þegar hann byrjar að fá verk í fótinn, þá á­kveður hann að fara upp á bráða­mót­tökuna á Sel­fossi,“ segir Birna, en næsta sem þær heyra er að það er verið að flytja Hjalta á spítala í Reykja­vík.

„Þá var hann kominn með blóð­eitrun og næsta sem við vitum þá er hann fár­veikur á gjör­gæslu og haldið sofandi í tæpar tvær vikur,“ segir Birna.

„Það var lengi ekkert vitað hvað væri í gangi, en síðan kom í ljós að hann væri með streptó­kokka­sýkingu í vöðva, sem var búið að valda fjöl­líf­færa­bilun, nýrun voru hætt að starfa og hjartað var að gefa upp öndina. Þetta var rosa­lega svart,“ segir Birna.

Hjalti er vaknaður og á fimmtu­dag fór hann á A7, sem er smit­sjúk­dóma­deild Land­spítalans. Bráð­lega verður Hjalti færður á Grens­ás­deild, þar sem hann mun vera í endur­hæfingu næstu fimm mánuði, fjarri fjöl­skyldu sinni, en vonast er eftir þvi að hann geti komið heim um helgar.

„Hann gat drukkið úr glasi í fyrsta skipti í gær, en hann þarf að læra allt upp á nýtt. Hann getur til að mynda ekki gengið. Á föstu­daginn kom ég í heim­sókn til hans með fimm mánaða gamalt barnið hans og það var hægt að setja hann í fangið á honum, en Hjalti hafi engann mátt til þess að ráða við barnið. Hann gat ekkert lyft upp höndunum eða neitt,“ segir Birna.

Birna hefur verið með fimm mánaða gamalt barn parsins síðan Hjalti veiktist, en Edda hefur verið hjá honum í Reykja­vík. „Ágústa er búin að vera með tæp­lega tveggja ára systur hans hjá sér. Edda hefur verið hjá Hjalta, gist í Reykja­vík og ekkert komið heim. Þau búa rétt fyrir utan Stokks­eyri og í allri ó­vissunni þá var enginn séns tekinn með að vera tæp­lega klukku­tíma í burtu,“ segir Birna.

Hægt er að lesa meira hér.

Þeir sem vilja leggja fjöl­skyldunni lið geta lagt inn á söfnunar­reikning í nafni Eddu. Reiknings­númerið er 0162-05-261144 og kenni­tala 0201852879.

Fleiri fréttir