Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, segir að hún til sín gagnrýni á hana varðandi orð hennar um að slæmum samskiptum stjórnenda hjá KSÍ mætti líkja við leikskólasamskipti í Lestinni á Rás 1 fyrr í vikunni.
„Ég sé að ég hef komið illa við leikskólakennara og annað starfsfólk leikskóla með því að líkja tregðu KSÍ til að axla ábyrgð á gjörðum sínum við leikskólasamskipti. Það er fullkomlega réttmæt gagnrýni sem ég tek til mín, enda lætur enginn svona á leikskólum,“ segir Halla í færslu sem hún deildi eftir að Kristín Dýrfjörð, dósent, sem hefur rannsakað íslenska leikskóla gagnrýndi Höllu í gær fyrir að segja að atburðarásin hjá KSÍ undanfarna daga hafi minnt hana á leikskólasamskipti.
„Ég er orðin þreytt á þessu og bið fólk vinsamlegast að kynna sér starf og samskipti leikskólabarna áður en það lætur þessa vitleysu út úr sér,“ segir Kristín og bætti við:
„Í guðanna bænum ekki blanda leikskólum inn í þessi KSÍ mál.“
Talsverðar umræður sköpuðust við ábendingu Kristínar sem að Halla svaraði. Hún þakkaði ábendinguna og samþykkti að orðalagið væri ekki heppilegt. Hún sagði að henni þætti samt sem áður óþægilegt að vera gert upp almennt virðingarleysi gagnvart börnum og mótmæli því.
Hún útskýrði einnig orð sín frekar og mælti með því að hlustað væri á allt viðtalið.
„Mér fannst það hvernig KSÍ neitaði að gangast við gjörðum sínum fyrr en það hafði engan möguleika á öðru minna mig á börn í mínu lífi sem færast undan því að segja fyrirgefðu þegar þeim ber að gera það. En börnin höndla það almennt betur,“ sagði Halla.