Dagurinn var algjörlega frábær. Við vorum búin að búa okkur undir rigningu og að það yrði kalt, en svo skein sólin og fjöldi fólks mætti. Þannig allt gekk gríðarlega vel,“ segir Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga um Gleðigönguna sem fór fram í dag. Fréttablaðið greindi frá.
Hann veit ekki hversu margir mættu á Gleðigönguna, en hefur á tilfinningunni að það hafi aldrei fleiri mætt. „Mér finnst ég ekki hafa séð svona mannfjölda áður, ef ég á að dæma út frá því. Við getum í öllu falli sagt að þetta var umtalsvert meiri fjöldi en síðustu ár,“ segir hann og hlær.
Það vakti mikla athygli að einhverjir mótmæltu viðveru lögreglunnar á Gleðigöngunni. Q-félag, félag hinsegin stúdenta, tók til að mynda ekki þátt í Hinsegin dögum á þessu ári, og þar á meðal Gleðigöngunni, vegna handtöku á hinsegin einstaklingi árið 2019.
„Stóra myndin er sú að staða hinsegin samfélagsins víða um heim og lögreglu er oft erfið. Það hefur alla tíð verið umdeilt að lögreglan komi með einhverjum leiti að hátíðarhöldum Hinsegin daga. En staðan er sú að við getum ekki haldið gleðigönguna, frekar en aðra stórviðburði án öryggisgæslu. Lögreglan er ekki þátttakandi í göngunni en hún tryggir gönguleiðir og fleira,“ segir Gunnlaugur.
Hann segist harma handtökuna árið 2019. „Vissulega var þessi handtaka árið 2019 sem að Hinsegin dagar harma að hafi átt sér stað. Það er samtal og úrvinnsla sem samfélagið okkar þarf að eiga. En hins vegar er gleðigangan er í grunninn mótmæli og kröfuganga, við fögnum því að fólk komi öllu sem það þarf að koma frá til skila,“ segir Gunnlaugur.
Hægt er að lesa alla greinina hér.