Félagar í Félagi fréttamanna og starfsmenn fréttastofu RÚV í öðrum félögum harma nýjasta áróðursmyndband útgerðarfyrirtækisins Samherja í yfirlýsingu. Þau segja þar enn eina ferðina ráðist persónulega að Helga Seljan fréttamanni RÚV.
„Fréttamenn RÚV lýsa yfir eindregnum stuðningi við Helga í þessari ófrægingarherferð Samherja á hendur honum sem er fordæmalaus í sögu fjölmiðlunar á Íslandi,“ segir í yfirlýsingunni sem birt var í gærkvöldi.
Þar segir að Samherji hafi undanfarin misseri valið þá leið að veitast að blaða- og fréttamönnum frekar en að svara efnislega spurningum um starfsemi fyrirtækisins og ásakanir um lögbrot. Þetta hafi fyrirtækið meðal annars gert með fjarstæðukenndum dylgjum í færslum á vef sínum og með því að borga fyrir dreifingu áróðursmyndbanda þar sem gróflega er vegið að fjölmiðlum, einkum og sér í lagi að fréttamanninum Helga Seljan.
Í yfirlýsingunni bendir félagið á að starfsemi Samherja sé til rannsóknar hjá yfirvöldum hérlendis og erlendis sem hafi leitt til þess að hér á Íslandi hafi menn fengið réttarstöðu grunaðra og að erlendis sæti menn saksókn og gæsluvarðhalds.
„Í stað þess að svara efnislega reynir Samherji að láta málið hverfast um persónu Helga. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu fráleitt það er,“ segir í yfirlýsingunni.
Þá fjalla þau um úrskurð siðanefndar RÚV og ítreka mikilvægi þess siðareglum RÚV verði breytt til að tryggja rétt fréttamanna til að verjast árásum með málefnalegum hætti. Þau segja að þörf á endurskoðun hafi legið fyrir frá árinu 2017.
„Ofbeldi á sér margar birtingarmyndir. Framkoma Samherja í garð þeirra fréttamanna sem unnið hafa að umfjöllun um fyrirtækið getur ekki talist annað en ofbeldi og skipulögð aðför að upplýstri umræðu og gagnrýnum en ábyrgum fréttaflutningi. Fréttamenn RÚV munu þrátt fyrir það hér eftir sem hingað til halda áfram hlutlægri og málefnalegri umfjöllun um Samherja og láta árásir fyrirtækisins ekki hafa áhrif á fréttaflutning,“ segir í tilkynningunni.
Þá er að lokum bent á að Íslandi lækkaði milli ára á lista samtakanna Fréttamenn án landamæra þar sem fjölmiðlafrelsi er kannað. Í umsögn samtakanna um fjölmiðlafrelsi á Íslandi var meðal annars minnst á herferð Samherja til að reyna að gera tortryggilega þá fréttamenn sem unnið hafa að umfjöllun um málefni fyrirtækisins.