Haraldur Ingi Þorleifsson, athafnamaður og maður ársins hér á landi árið 2022, birti tvær athyglisverðar færslur á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi.
Í þeirri fyrri sagði hann ekkert sjálfgefið að sumar stéttir eigi að vera á mjög háum launum og aðrar á mjög lágum.
„Samfélagssáttmálinn þarf að breytast. Og það gerist ekki án þess að láglaunafólk setji niður fótinn og krefjist þess að þau fái jafnari hlut af kökunni,“ sagði Haraldur og í hinni síðari birti hann nokkur skjáskot úr fréttum síðustu daga þar sem við höfum séð fyrirsagnir á borð við þessar:
„Íslandsbanki hagnast um 24,5 milljarða“
„Eigið fé Þorsteins og Helgu 62 milljarðar“
„Hagnaður Eimskips tvöfaldast“
„Síminn hyggst greiða út yfir 16 milljarða“
„Nokkrar fréttir síðustu daga. Það er nóg til og það er hægt að bæta kjör láglaunastétta verulega,“ sagði Haraldur í færslunni.
Nokkrar fréttir síðustu daga.
— Halli (@iamharaldur) February 14, 2023
Það er nóg til og það er hægt að bæta kjör láglaunastétta verulega. pic.twitter.com/SA3lkQGuCb
Það er alls ekkert sjálfgefið að sumar stéttir eigi að vera á mjög háum launum og aðrar á mjög lágum.
— Halli (@iamharaldur) February 14, 2023
Samfélagssáttmálinn þarf að breytast.
Og það gerist ekki án þess að láglaunafólk setji niður fótinn og krefjist þess að þau fái jafnari hlut af kökunni.