Fjármálastöðuleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að setja reglur um hámark greiðslubyrðar af nýjum lánum. Nýju reglurnar takmarka greiðslubyrði nýrra lána í 35 prósent af heildar ráðstöfunartekjum en í 40 prósent hjá fyrstu kaupendum.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í gær að nýjar reglur um hámark greiðslubyrði húsnæðislána hafi almennt meiri áhrif á tekjuhærri.
Hannes Steindórsson, nýr formaður félags fasteignasala, segir þetta hins vegar einungis bitna á þeim sem hafa lægstu tekjurnar. Það sé rangt að þetta hafi frekar áhrif á tekjuhæstu einstaklingana.
„Seðlabankastjóri er ótrúlega klár en þetta er bara rangt,“ sagði Hannes í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann segir töflu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sömuleiðis vera ranga.
„Það sem vantar inn í þetta er verð á íbúðum. Þau reikna með fólki í töflunni sem getur keypt sér íbúð og greitt 70 þúsund og þá tekið 16 milljóna króna lán,“ bendir Hannes á og bætir við:
„Fasteignir kosta ekki 25 milljónir. Ódýrustu íbúðirnar eru yfir 40 milljónir.“