„Hann virtist ekkert kippa sér sérstaklega upp við aldursmuninn“

Söngkonan Elísabet Ormslev vakti athygli á Twitter í vikunni þar sem hún opnaði sig um samband sitt við tónlistarmann sem hófst þegar hún var aðeins 16 ára en hann 38 ára. Það sem fékk Elísabetu til að opna sig um málið eru ítrekaðar komur hans fyrir utan heimili hennar sem vakið hafa hjá henni óhug.

Elísabet fer yfir sögu sína og þessa manns í einlægu og opinskáu viðtali við helgarblað Fréttablaðsins en þar kemur, meðal annars fram að Elísabet sem þarna var 16 ára bjó enn hjá móður sinni, söngkonunni Helgu Möller, og hann, sem var 38 ára, starfaði sem tónlistarmaður.

„Hann virtist ekkert kippa sér sérstaklega upp við aldursmuninn,“ segir Elísabet sem var spennt yfir kossinum en sagði þó engum frá honum á þessum tímapunkti.

Viðtalið er hægt að lesa hér.

Fleiri fréttir