Hafa ekki gefist upp á Bláum Opal: „Ein­hver besta fjár­festing sem menn hafa komist í“

Frá því að fram­leiðslu á Bláum Opal var hætt árið 2005 hafa fjöl­margir kallað eftir því að Nói Síríus komi aftur með nammið en í gegnum tíðina hafa gamlir pakkar af Bláum Opal selst fyrir háar fjár­hæðir á netinu. Einn slíkur pakki seldist á 16 þúsund krónur á dögunum en sá var frá árinu 1974.

Auð­jón Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri markaðs- og sölu­sviðs Nóa Síríus, segir í sam­tali við Frétta­blaðið að slíkir pakkar komi reglu­lega upp. „Þannig að ef ein­hver lumar á gömlum pakka, þá virðist það verið ein­hver besta fjár­festing sem menn hafa komist í,“ segir Auð­jón.

Hann úti­lokar ekki að Blár Opal verði fram­leiddur á ný en Nói Síríus hafa síðast­liðin ár reynt að hafa upp á einu aðal­bragð­efninu sem var í þeim gamla, klóró­formi. Árið 2016 var talað um að von væri á Bláum Opal á ný en það rættist ekki.

„Við erum alltaf að reyna að finna lausn á þessu óska­barni þjóðarinnar. Við höfum mikið leitað að bragð­efni sem nær ekki einungis sama bragði, heldur sömu til­finningu og Blár Opal gaf. Þessi leit er þrautinni þyngri,“ segir Auð­jón við Frétta­blaðið.

Þá bætir hann við að þau hafi alls ekki gefist upp og aldrei að vita hvort nammið komi í verslanir á ný. „En okkur dettur ekki í hug að koma með vöru sem er ekki alveg eins og gamli Blái, þá værum við bara að gera þjóðinni ó­leik.“

Pakki af Bláum Opal seldist á 16 þúsund krónur í vikunni.
Facebook/Skjáskot

Fleiri fréttir