Gunni Helga opnar sig: „Mér fannst ég bara ömurlegur“

„Ég ákvað snemma að ég ætlaði að verða leikari eða rithöfundur,“ segir Gunnar Helgason sem sinnt hefur báðum þeim störfum sem hann ætlaði sér. Hann var viðmælandi í helgarblaði Fréttablaðsins.

Hann útskrifaðist úr Leiklistarskólanum árið 1991, þá 26 ára gamall. Síðan hefur hann leikið í fjölda þátta og kvikmynda ásamt því að vera mikið í leikhúsi. Þá er hann einn söluhæsti barnabókahöfundur landsins frá árinu 2011.

„Það var þetta tvennt, að skrifa eða leika, en það var einhvern veginn þannig að leikaradraumurinn tók yfir,“ segir Gunnar. „Ég var alltaf að trúðast fyrir vinina og leika í leikritum í skólanum og svona og ég skrifaði miklu minna en ég lék sem barn og unglingur. Ég vildi hafa fullt af fólki í kringum mig og láta það hlæja,“ bætir hann við.

Bók Gunnars Víti í Vestmannaeyjum var gerð að kvikmynd árið 2018 og Mamma klikk sett á svið í leikhúsi líkt og fram hefur komið. Gunnar þekkir því tilfinninguna sem fylgir því að sjá persónurnar sem hann skapar lifna við. „Það er sturluð upplifun að sjá bók sem maður hefur skrifað og hugsað fyrir öllu lifna við. Maður fer bara út úr líkamanum,“ útskýrir hann.

Þegar Mamma klikk var sett á svið fór Gunnar með hlutverk í sýningunni, hann segist hafa átt erfitt með einbeita sér við leikinn, slík hafi aðdáun hans á samleikurunum verið.

„Það kom fyrir á svona helmingi sýninganna að ég stóð á hliðarsviðinu að bíða eftir að ég ætti að fara inn, en gleymdi mér. Ég var bara að hlusta og horfa og mér fannst leikararnir svo skemmtilegir og mér fannst svo ótrúlegt að þetta væri lifnað við,“ segir hann og ljómar.

„Mér fannst ég bara ömurlegur. Mér fannst ég svo lélegur í leikritinu af því að ég var ekkert að leika, ég var bara að dást að hinum. Ég lagði mig mikið fram við að bæta mig þegar við komum til baka og þetta var eins og að vera staddur í draumi. Þegar þig dreymir góðan draum og allt er geggjað, þetta var bara þannig.“

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir