Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri Sósíalistaflokksins, hefur ákveðið a myndbirta meinta hryðjuverkamenn á heimasíðu sinni en drengirnir tveir sem liggja undir grun eru 24 og 25 ára gamlir. Gæsluvarðhald yfir þeim hefur verið stytt og stefnir allt í það þeim verður sleppt eftir viku,
Gunnar Smári óskar hins vegar upplýsingum um athafnir þeirra og skoðanir.
Gunnar Smári og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, greindu frá því í gærmorgun að þau voru meðal þessa fólks sem hótað var að myrða.
„Og í kjölfarið kom yfirlýsing um að Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata og fyrrum þingmenn flokksins, þeir Smári McCarthy og Helgi Hrafn Gunnarsson, hefði einnig verið kallaðir til vitnis vegna þess að þeirra nöfn voru nefnd af sambærilegu tilefni.“
„Mögulega munu fleiri stíga fram á næstu dögum og þá mun ef til vill skýrast betur hverjar pólitískar áherslur mannanna eru,“ segir á vefsíðunni Samstöðin sem Gunnar rekur.
Hann ákvað í gær að nafnbirta mennina tvo og setti færslu um það á Facebook.