Gunnar í Krossinum niðurbrotinn eftir fráfall Jónínu: „Í marga mánuði að ná huganum í lag“

Gunnar Þor­steins­son, oftast kenndur við Krossinn, saknar Jónínu Ben heitinnar, fyrr­verandi eigin­konu sinnar, mjög. Þau hafi ætlað að taka aftur saman skömmu fyrir and­lát hennar. Þessu greinir Gunnar frá í við­tali við Mann­líf.

Gunnar segir að þau fyrrum hjónin hafi verið góðir vinir. Jónína hafi verið af­burða greind og þau áttu vel saman. Þrátt fyrir það skildu leiðir þeirra en Gunnar segist að ástin hafi aldrei fölnað: „Það voru að­stæður sem ollu því. Það var ekki það að ástin væri ekki til staðar. Það var ekki vanda­málið. Við skildum aldrei en fórum í sundur en töluðum saman á sirka tveggja tíma fresti alla daga. Það var aldrei þögn eða að­skilnaður í þeim skilningi,“ segir Gunnar um skilnaðinn.

Hann segir þau hafa kynnst í gegnum det­oxið: „Ég kynntist henni þegar hún var að aug­lýsa det­ox; það var við­tal við hana ein­hvers staðar. Ég hringdi í hana og spurði hvort ég mætti koma með og fasta. Þetta var á mínum tíma; í byrjun janúar,“ segir Gunnar.

Hann kveðst hafa fastað um ára­tuga­bil: „Ég fasta alltaf í byrjun janúar og er búinn að gera þða í 43 ár. Þrjár vikur í senn. Þá borða ég ekkert; drekk bara vatn og þá hef ég oft verið á hótelum eða sumar­bú­stöðum ein­hvers staðar,“ segir Gunnar. Hann heldur á­fram: „Svo datt mér í hug að fara með hópnum. Ég gerði þetta tvisvar eða þrisvar og við kynntumst á þessum árum og það endaði með því að það kom upp há­vær orð­rómur í sam­fé­laginu um að við værum par,“ segir Gunnar.

Hann segist í fram­haldinu hafa boðið Jónínu í mat og það endaði með ást.

Þau urðu ó­að­skiljan­leg þrátt fyrir að­skilnaðinn. Raunar ætluðu þau að taka aftur saman, skömmu fyrir and­lát Jónínu: „Ég var í marga mánuði að ná huganum í lag. Hún hafði svo ríka nær­veru í mínu lífi í um tíu ár, þannig að ég refereraði í huganum mikið til hennar. Og það var eigin­lega erfiðasti hjallinn að losna undan því að láta minninguna bara vera ljúfa og á sínum stað,“ segir Gunnar.

Fleiri fréttir