Gunnar Bragi hættir á þingi: „Það eru auðvitað særindi“

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi ráðherra, ætlar ekki að bjóða fram í áframhaldandi þingsetu fyrir Miðflokkinn í kosningunum í haust. Frá þessu greinir Gunnar Bragi í viðtali við Morgunblaðið í dag.

Þar segist hann kveðja stjórnmálin sáttur en hann hefur setið á þingi í tólf ár.

„En þetta er búinn að vera ákaflega áhugaverður og skemmtilegur tími og maður er búinn að gera nánast allt í pólitík, sem hægt er að hugsa sér,“ segir Gunnar Bragi í viðtalinu en segist samt feginn að sleppa.

Gunnar Bragi fer yfir ferill sinn á þingi og þann tíma þegar hann yfirgaf Framsóknarflokkinn og stofnaði Miðflokkinn með öðrum.

„Auðvitað er fólk í báðum flokkum, sem getur talað saman og myndað traust, en það er ekki almennt. Það var erfitt fyrir okkur mörg að stíga þetta skref, en ég sé ekki eftir því. Það var óhjákvæmilegt. Það var einfaldlega ekki hægt að sitja undir þeirri forystu, sem þar var og er. Það getur vel verið að við getum unnið með þessu ágæta fólki, en við getum ekki verið saman í flokki. Og það eru auðvitað særindi, eðlilega, þegar það eru undirmál og óheilindi, eins og voru í Framsókn á þessum tíma. Það hjálpar ekki heldur þegar maður sér að þeir sem mest og verst höfðu sig í frammi með óheilindum þá, eru núna að reyna að lappa upp á ímyndina með því að fara í viðtöl og tala um æskuna eða annað slíkt til þess að breiða yfir sína framgöngu í stjórnmálum,“ segir Gunnar Bragi í viðtalinu um það þegar hann yfirgaf Framsóknarflokkinn.

Hann segist kveðja stjórnmálin sáttur en er ekki viss hvað hann ætli að gera næst.

„Nei, ég ætla að hætta og þá hætti ég alveg. En svo veit maður auðvitað ekki hvað gerist síðar á lífsleiðinni. Kannski þessi baktería taki sig upp síðar, hver veit? En ég er 53 ára gamall og stóð frammi fyrir spurningunni hvort ég vildi halda áfram í þessu sama eða gera eitthvað nýtt. Ég valdi að gera eitthvað nýtt,“ segir Gunnar Bragi.

Viðtalið er hægt að lesa hér í heild sinni.

Fleiri fréttir