Guðni Már Henningsson, fyrrverandi útvarpsmaður, rithöfundur og ljóðskáld, verður jarðsunginn í dag. Freyr Eyjólfsson, fyrrverandi útvarpsmaður og vinur Guðna Más til margra ára, minnist hans með hlýjum orðum í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Guðni Már Henningsson vinur minn og samstarfsmaður verður jarðsunginn í dag. Í nótt kom hann til mín í draumi sem sérkennilegur og dularfullur sirkusstjóri. Ég átti ekki von á neinu öðru, því allir dagar með Guðna voru fullir af fjöri og furðulegum atvikum, óvæntum augnablikum,“ segir Freyr sem birtir einnig upptökur af lögum sem hann samdi við ljóð Guðna.
Óhætt er að segja að um afar fallegt samvinnuverkefni þeirra félaga hafi verið að ræða en hægt er að hlusta á afraksturinn hér að neðan.
„Hann var eineygði risinn með barnshjartað, fullur af elsku og samúð með öllum hlutum, einstaklega viðræðugóður um allt og ekkert, enda elskaði fólk að spjalla við Guðna sem nálgaðist alla af fullkomnu æðruleysi og formdómaleysi. Guðni Már var alltaf að grúska í bókum, plötum, sískrifandi texta og ljóð, málandi og teiknandi. Eitt sinn í kringum 2003, tókum við upp nokkur demó í skjóli nætur; þetta fann ég fyrir stuttu síðan. Hérna er eitthvað úr þeirri session, óslípað og einfalt en ljóðin þín Guðni minn; þau eru svo dularfull og sérkennileg, full af elsku og mildi eins og þú. Far vel kæri vinur,“ segir Freyr.
Guðni Már var fæddur 9. júní árið 1952 og var hann einn ástsælasti útvarpsmaður landsins í mörg ár og stýrði Næturvaktinni á Rás 2 sem var fastur punktur í tilveru margra. Guðni lést á heimili sínu í Tenerife á Spáni þann 4. október síðastliðinn.