Haraldur Ingi Þorleifsson, stofnandi Ueno og starfsmaður Twitter hefur verið í hörðum deilum við Elon musk eiganda Twitter síðustu daga sem endaði með því að sá síðarnefndi bað Halla afsökunar.
Haraldur hefur þó látið rifrildið lítið á sig fá og gaf nýverið út lag sem birtist á YouTube-síðu Haraldar. Lagið heitir Almost Over You.
Haraldur spilar undir listamannsnafninu Önnu Jónu son sem er vísun í nafn móður hans sem lést þegar hann var aðeins ellefu ára gamall.
Hann greindi síðan frá því í dag að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hafi óvænt boðist til að gefa honum fallega sokka.
„Sem er það besta sem þú getur gefið einhverjum,“ skrifar Haraldur.
In other news, @PresidentISL offered to give me some nice socks today.
— Halli (@iamharaldur) March 10, 2023
Which is the best thing you can give someone.