Guð­mundur tár­votur og klökkur yfir stuðningnum – Sjáðu mynd­bandið

Guð­­mundur Guð­­munds­­son, lands­liðs­­þjálfari ís­­lenska lands­liðsins í hand­­bolta var greini­­lega hrærður með stuðning ís­­lensku stuðnings­mannanna í Kristian­stad í gær­­kvöldi.

Ís­lenska lands­liðið hóf HM á afar góðum sigri gegn Portúgal í fyrstu um­­­ferð riðla­­keppninnar.

Um spennu­­­þrunginn leik var að ræða þar sem Strákarnir okkar sýndu mátt sinn og megin á loka­mínútunum og unnu að lokum fjögurra marka sigur 30-26.

Gríðar­­leg stemning var á meðal ís­­lenskra stuðnings­manna í Kristian­stad Arena í gær­­kvöldi eftir að Strákarnir okkar sigruðu sinn fyrsta leik á HM gegn Portúgal. Hátt upp í tvö þúsund Ís­­lenskir stuðnings­­menn voru mættir í stúkuna á Kristian­stad Arena og létu vel í sér heyra á meðan á leik stóð sem á eftir leik.

Eftir leik fór síðan gæsa­húð um alla ís­­lensku þjóðina þegar að stuðnings­­menn Ís­lands tóku að syngja lagið Ég er kominn heim sem hefur orðið ein­hvers konar þjóð­­söngur stuðnings­manna ís­­lensku lands­liðanna í bolta­í­­þróttum.

Myndirnar sem RÚV skilaði heim til þjóðarinnar í gegnum sjón­­varpið frá Kristian­stad voru magnaðar og mátti sjá tár­votan Guð­­mund virki­­lega hrærðan með stuðninginn sem liðið fékk.

Mynd­band af at­vikinu má sjá hér fyrir neðan. Ís­land á næst leik gegn Ung­verja­landi á morgun klukkan 19:30.

Fleiri fréttir