DV, RÚV og fleiri miðlar eru nú að biðla til almennings um hugmyndir að Maður Ársins 2021.
Tómas Ingi nokkur safnaði saman nokkrum athugasemdum og var að velta því fyrir sér hvort einhverjir gætu verið að ruglast á leikaranum Guðmundi Felixsyni og Guðmundi Felix Grétarssyni, sem hefur hrifið þjóðina með því að fá græddar á sig nýjar hendur.
Snærós Sindradóttir útvarpskona á RÚV sagði: „Nei, bara ein þeirra er að tala um manninn sem fékk hendur - hinar eru að tala um sviðslistamanninn knáa Guðmund Felixson en hann er tilnefndur fyrir stórkostlega frammistöðu í lokaþætti Með Ófærð á heilanum.“
Guðmundur Felixson er upp með sér að einhver hafi tilnefnt hann sem Maður Ársins 2021.
„Jújú ég á þetta vissulega skilið enda búinn að vera duglegur að segja prumpubrandara í Þjóðleikhúskjallaranum allt árið,“ segir hann á Twitter.
Jújú ég á þetta vissulega skilið enda búinn að vera duglegur að segja prumpubrandara í Þjóðleikhúskjallaranum allt árið https://t.co/f5MuGXfZ8U
— Guðmundur Felixson (@GummiFel) December 13, 2021