Guðmundur Felix Grétarsson, var gestur í morgunþættinum Ísland vaknar á K100 í morgun en þar ræddi endurhæfingu sína og nýjar áskoranir sem hann ætlar að taka að sér í ár.
Þjóðin hefur fylt Guðmundi eftir síðastliðinn ár síðan hann fékk græddar á sig nýjar hendur í Frakklandi.
Í samtali við K100 segir Guðmundur að hann sé kominn með tilfinningu alls staðar og ágætisgrip hægra megin. „En ég er ekki að ná að hreyfa einn fingur í einu almennilega, og eitthvað svoleiðis,“ segir Guðmundur.
Hann ætlar engu að síðar að fara í heldur betur stóra áskorun á árinu og ætlar að ganga upp Mont Blanc sem er hátt í 5 þúsund metrar á hæð.
„Við ætlum að skrölta upp á Mont Blanc. Í rauninni er ástæðan sú að þetta ár sem er að koma núna er væntanlega eitt mikilvægasta árið í mínu lífi fram að þessu. Vegna þess að það er svona vöxtur og framþróun í þessu, hafa þeir út frá þeim handígræðslum sem þeir hafa gert þá eru svona þrjú ár sem má búast við framþróun,“ segir Guðmundur sem ætlar þó ekki að klifra neitt.
Hlustaðu á viðtalið hér.