Guðlaugur og Bjarni takast á um formanninn

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, býður sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Það tilkynnti hann á fundi í Valhöll í dag.

Guðlaugur Þór sagði á fundinum í Valhöll að enginn stjórnmálamaður ætti betri stuðningsmenn og vini en hann.

„Ég er óendanlega þakklátur fyrir það,“ sagði hann og að þau gætu klárað saman einn landsfund.

Bjarni Benediktsson, núverandi formaður, segist ætla að hætta í stjórnmálum tapi hann slagnum en Guðlaugur segist ekki ætla að stilla sínum málum þannig upp. Hann ætli sér að taka slaginn og niðurstöðunni líka þegar hún kemur.

Fleiri fréttir