Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, boðar til opins fundar í dag klukkar 12:30 í Valhöll þar sem hann mun gera grein fyrir ákvörðun sinni um það hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins.
Aðeins einn er þegar í framboði og það er núverandi formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, sem hefur verið formaður síðan árið 2009.
Í viðtali við Fréttablaðið í vikunni sagði Guðlaugur Þór þetta stóra ákvörðun og að hann myndi ávallt tilkynnta formanninum hana fyrst. Hann sagði fjölda hafa skorað á sig og að hann tæki þessa ákvörðun alvarlega.