Hlaðvarpið Fæðingarcast hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir ummæli sem Gréta Morthens lét falla í síðasta þætti.
„Ég fór í einhvern 3D sónar og grenjaði út úr mér augun því ég þekkti ekki barnið sem var þarna inni og leit bara út eins og lítill svertingi með risa nef og allt of stórar varir og ég bara., ég þekki þetta barn ekki neitt,“ sagði Gréta í þættinum.
Hlustendur hafa gagnrýnt þáttastjórnendur fyrir að gefa út þáttinn án þess að klippa út ummælin. Sara Björk Guðmundsdóttir og Viktoría Ósk Vignisdóttir stofnuðu hlaðvarpið Fæðingarcast en það fjallar um meðgöngu, fæðingu, brjóstagjöf og allt sem því tengist.
Nokkrir hlustendur kvörtuðu til Söru og Viktoríu og sögðu ummælin vera niðrandi í garð svartra.
Fjölmargar konur, þar á meðal mæður sem eiga lituð börn, hafa vakið athygli á þessu á Instagram. Þáttastjórnendur sögðu í fyrstu að þetta væri óheppilegt orðalag en hlustendur sögðu þá staðhæfingu vera vægari en efni standa til. „Óheppilegt orðalag á ekki einu sinni við þessa lýsingu heldur var þetta algjörlega rasista comment,“ sagði ein.
Þáttastjórnendur hafa í kjölfarið birt afsökunarbeiðni á Instagram-síðu Fæðingarcastsin og tekið þáttinn út.
Hér fyrir neðan má sjá afsökunarbeiðnina sem þáttstjórnendur birtu á Instagram Story.