Grein Þorsteins um bólusetningar vekur furðu: „Verulega áhyggjuvaldandi“

Netverjar á Facebook grúppunni Vísinda í íslenskum fjölmiðlum gagnrýna aðsenda grein um bólusetningar og smit eftir Þorstein Siglaugsson í Morgunblaðinu í dag og segja hana merki um Dunning – Kruger áhrifin, hugsanavillu sem á við þegar þeir sem minnst vita, telja sig best vita.

Greinin umrædda ber fyrirsögnina Minnkar bólusetning vörn gegn smiti? og má sjá hana hér fyrir neðan. Þar kemst Þorsteinn að þeirri niðurstöðu að tvíbólusettir séu í tvöfalt meiri hættu á að smitast af Covid-19 en óbólusettir.

„Það að höfundurinn, Þorsteinn Siglaugsson, sé hagfræðingur segir allt sem segja þarf. Hagfræðingar, rétt eins og lögfræðingar, eru mjög færir í að rökstyðja fyrirfram gefnar niðurstöður. Þeim er síður treystandi til að finna sannleikann,“ skrifar einn.

Annar segir Þorstein með öllu ómarktækan.

„Það er verulega áhyggjuvaldandi að hagfræðingur átti sig ekki á þessum grundvallaratriðum í faraldsfræðilegri greiningu. Einnig er það áhugavert að hans "greining" sýnir einnig að þeir sem hafa fengið örvunarskammt eru með langminnsta nýgengið - en honum er alveg sama um það því það samsvarar ekki málstað sínum.“

„Lögmál Betteridge segir: Fyrirsögn sem lýkur með spurningamerki er yfirleitt hægt að svara með ‘nei’,“ bendir sá þriðji á.

„Dunning-Kruger er nánast orðið dautt meme á þessum tímum, en þetta er held ég besta dæmið um áhrifin sem ég hef séð,“ skrifar sá fjórði.

Fleiri fréttir