Góð­­verk dagsins: Gaf meiri­hluta af inn­búi sínu til flótta­­­fólks frá Úkraínu

Hörður Jónas­­son, fyrrum bíl­­stjóri, gaf meiri­hluta af inn­búi sínu til flótta­­fólks frá Úkraínu. Hörður hafði aug­­lýst inn­búið gefins á Face­book, en á­kvað að lokum að gefa þetta til flótta­­fólks á Bif­­röst. Kemur þetta fram á vef Fréttablaðsins.

Hann komst í sam­band við hjón frá Hafnar­firði sem voru að safna inn­búi í íbúð fyrir flótta­fólk frá Úkraínu.

Hjónin tóku ís­­skáp, tvö rúm, borð­­stofu­­borð og stóla, glugga­­tjöld, spegla, borð­búnað, herða­­tré, strau­­borð og strau­­járn, meðal annars. „Bara nefndu það, nánast allt sem þarf á eitt heimili“ segir Hörður á Face­book síðu sinni.

Hörður segir hjartað sitt vera að springa úr gleði, enda hafi hjónin tekið um 80% af inn­búinu. Hörður segir þetta vera sitt fram­lag til þessa mál­efnis en nú er inn­búið hans komið á gamla skóla­­stað hans Bif­­röst.

Greinina í Fréttablaðinu má lesa hér.

Fleiri fréttir