Glúmur fór í kapp við ókunnugan kvenmann: „Og svo spyr fólk mig af hvurju ég eigi ekki konu?“

Glúmur Baldvinsson segir frá því á Facebook hvernig hann sparaði sér 57 sekúndur af lífinu sínu, með því að sigra ókunnuga konu í kapphlaupi að ísbúð.

„Enn um viðureign mína við íþróttakonur og valkyrjur. Og frekjur,“ skrifar Glúmur á Facebook.

„Lagði bílnum skammt frá ísbúð og gekk svo í makindum í átt að henni. Þá sé ég vörpulegan kvenmann í æfingagalla World Class koma úr annarri átt. Í tíu stiga frosti. Sú gekk greiðlega og ætlaði sér greinilega að vera á undan mér,“ skrifar hann.

Glúmur ætlaði þó ekki að enda á eftir konunni í röðinni, þannig hann greikkaði sporið.

„Þá tekur mín að skokka og gefur mér auga. Nú var mér nóg boðið og tek á sprett enda á þessum tímapunkti orðið hæpið að ég kæmist inn á undan henni. Hún bregst við með því að taka á rás og þá gef ég allt í sprettinn og kem fyrstur í mark einni hundruðustu úr sekúndu á undan frúnni. Ég glotti móður og másandi til hennar sigri hrósandi. Hún hvessti á mig augum. En ég vann og sparaði mér þarna 57 sekúndur í lífinu,“ skrifar Glúmur sáttur með sigurinn.

Glúmur skrifar að lokum að eina sem skiptir máli er að hann vann og hún tapaði, enda er það eina sem skiptir máli í þessu lífi.

„Og svo spyr fólk mig af hvurju ég eigi ekki konu?“

Fleiri fréttir