Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður, er harðorður í garð Isavia og Strætó á samfélagsmiðlum en þar spyr hann hvers vegna sé ekki lögð meiri áhersla á almenningssamgöngur á Keflavíkurflugvelli.
Björn Teitsson, áhugamaður um samgöngur og upplýsingafulltrúi Krabbameinsfélagsins, fjallar fyrst um málið og ber aðstæður hér saman við aðstæður í Noregi.
Þar er hægt að nota almenningssamgöngur til að komast á flugvöll í Bergen og kostar það aðeins því sem samsvarar 540 íslenskum krónum. Lestin gengur á 20 mínútna fresti.
Björn segir að hér á Íslandi gangi strætó 12 sinnum á sólarhring upp á Leifsstöð og kostar 1.950 krónur ein ferð. Þá hefur oft verið fjallað um það að auk þess að ganga sjaldan þá stöðvar strætó nokkuð langt frá flugstöðinni sjálfri.
Hversvegna er þetta svona @isavia og @straetobs ? Ömurleg þjónusta og mjög óumhverfisvænt að leggja ekki meiri áherslu á almenningssamgöngur. https://t.co/SBv6GLXKRI
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) August 4, 2021