Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi, svarar hæstaréttarlögmanninum og þingmanninum fyrrverandi, Jóni Magnússyni, fullum hálsi á Twitter.
Eins og Hringbraut greindi frá í gær furðaði Jón sig á uppnáminu vegna KSÍ-skandalsins svokallaða. Saumaði hann einkum að RÚV í færslu sinni á Facebook og sakaði stofnunina um að vera í krossferð gegn KSÍ. Jón sagði:
„Landsliðsmaður í fótbolta brýtur af sér fyrir 5 árum. Sættir nást með málsaðilum um lok málsins, en 5 árum síðar fer RÚV í krossferð gegn KSÍ og formaðurinn er látinn segja af sér. En samt heldur krossferðin áfram. Af hverju? Er þetta eðlilegt? Kom KSÍ þetta yfirleitt við í fyrsta lagi?“
Gísli Marteinn brást við þessu á Twitter-síðu sinni í morgun og sagði stefið kunnuglegt úr þessari átt.
„Þeir töldu Rúv vera í herferð gegn fólkinu í Panamaskjölunum, í herferð gegn Samherja og núna gegn KSÍ. Rúv er ekki í neinni herferð. Rúv er hinsvegar óháð valdamiklum aðilum, stundar alvöru fréttamennsku og þeir þola það ekki. Þessvegna vilja þeir leggja Rúv niður,“ segir Gísli Marteinn meðal annars.
Hann heldur áfram:
„Einu sinni vildi frjálshyggjufólk selja Rás 2 og minnka öll umsvif ríkisins í menningarlífi; Rúv, Þjóðleikhúsið og Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar voru undir sama hatti. Slík frjálshyggja er löngu horfin. Andúðin á Rúv í dag er andúð á fréttamennskunni sem þar er stunduð.“
Margir taka undir þetta hjá Gísla Marteini og í þeim hópi er Guðmundur Jóhannsson, samskiptafulltrúi Símans. Hann hefur ekki mikið álit á skoðunum Jóns: „Góð þumalputtaregla er að ef Jóni Magnússyni finnst eitthvað er öndverða skoðunin oftast sú rétta.“
Þeir töldu Rúv vera í herferð gegn fólkinu í Panamaskjölunum, í herferð gegn Samherja og núna gegn KSÍ. Rúv er ekki í neinni herferð. Rúv er hinsvegar óháð valdamiklum aðilum, stundar alvöru fréttamennsku og þeir þola það ekki. Þessvegna vilja þeir leggja Rúv niður. 1/2 pic.twitter.com/mY4jkzYhJl
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) August 31, 2021