Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður setur út á plássið sem bílskúrar taka í húsum.
Hann deildi mynd á Twitter þar sem hann segir að það sé sturlað að fólk vilji hafa húsin sín svona.
„Það er sturlað, en engu að síður staðreynd, að tugir þúsunda Íslendinga vilja hús þar sem bílaherbergið er stærra en barnaherbergið. Áhugaverð forgangsröðun.“
Fólkið á Twitter hefur haft skiptar skoðanir á þessu og hefur fjöldinn allur svarað Gísla.
Árni Guðmunddson segir: Af hverju ert þú ađ skipta þér ad hvernig tugþúsundir vilja hafa hús sín innréttuđ ?
Sem Gísli Marteinn svaraði: Það vill þannig til Árni að borgaryfirvöld skipta sér af því. Bílskúrar og teikningar eru samþykktar eða hafnað. Það er kerfi sem Sjálfstæðisflokkurinn bjó til í borginni. Þú mættir t.d ekki breyta húsi þínu í bílastæðahús þótt þú vildir. Ég hef áhuga á borgarmálum Árni.
Árni Torfason segir: Notar einhver bílaherbergi fyrir bíl lengur? Ég er að vinna með ljósmyndastudio / líkamsræktaraðstaða / lager / tölvuleikjaaðstaða.
Anna Sig segist elska bílskúrinn sinn: Elska bílskúrinn! Nægt pláss fyrir verkfæri, útileikföng, dekk til skiptanna, hjólin, bílinn.
Það er sturlað, en engu að síður staðreynd, að tugir þúsunda Íslendinga vilja hús þar sem bílaherbergið er stærra en barnaherbergið. Áhugaverð forgangsröðun. https://t.co/ZEPgbzDT6g
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) April 14, 2022