Gamla myndbandið: Manstu eftir þessari snilld?

Á YouTube má finna ógrynni af gömlum íslenskum myndböndum sem sum hafa fallið í gleymskunnar dá. Eitt þeirra má sjá hér að neðan en það sýnir þrjá unga menn við bílalúguna á Metro í Skeifunni.

Það er í raun óþarfi að hafa mörg orð um þetta bráðskemmtilega myndband, en til að gera langa sögu stutta sömdu þremenningarnir lag um pöntun sína á þremur bragðarefum. Þeir mættu með gítar og texta á blaði og komu starfsmanni bílalúgunnar án nokkurs vafa á óvart eins og heyra má í lok myndbandsins.

Myndbandið var tekið árið 2010 og lifir það enn góðu lífi á YouTube þar sem rúmlega sjö þúsund manns hafa horft á það.

Fleiri fréttir