Gagnrýnir Bubba fyrir að styðja Auður: „Hvað hefur hann að segja núna?“

Atli Már Steinarsson, útvarps- og fjölmiðlamaður hjá RÚV, gagnrýnir tónlistarmanninn Bubba Morthens, fyrir stuðnings hans við tónlistarmanninn Auður.

Auður hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið, en nýlega stigu þrjár stelpur fram og sögðu að hann hafi aldrei axlað ábyrgð á „ágengni og meiðandi“ framkomu.

„Bubbi er með sýningu í Borgarleikhúsinu þar sem fjallað er um kynferðisofbeldi sem hann lenti í. Síðan ákveður hann að gera lag með Auður. Spyr engan og tekur sér stöðu gegn þolendum. Hvað hefur hann að segja núna?,“ segir Atli á Twitter, sem síðan deilir með fylgjendum sínum að Bubbi hafi „blokkað“ hann.

„Tækifærissinni, drepast úr græðgi,“ segir einn Twitter notandi, á meðan Ólöf Tara, meðlimur Öfga kallar hann „Bubba Blokk.“

Fleiri fréttir