Gagnrýnin hafði ekki áhrif á ákvörðun Guðbjargar um að hætta við málshöfðun

Gagnrýni Katrínar Jakobsdóttur á útgerðarfélögin sjö sem ætluðu sér að höfða mál gegn ríkinu vegna makrílkvóta hafði ekki áhrif á Guðbjörgu Matthíasdóttur, aðaleiganda Ísfélags Vestmannaeyja, þegar hún tók ákvörðun um að draga hana til baka. Þetta er haft eftir Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, stjórnarformanni, í Mogganum í dag.

Líkt og fram hefur komið lýsti Katrín yfir reiði vegna málsins í ræðustól á Alþingi nú á dögunum. Útgerðarfélögin sjö höfðu krafið ríkið um 10,2 milljarða króna í bætur vegna makrílkvóta. Katrín sagði það sýna skort á samstöðu.

Síðan þá hafa fimm fyrirtækjanna hætt við umrædda málshöfðun. Huginn hyggst halda málinu til streitu og krefst félagið rúmlega 800 milljóna króna í bætur. Vinnslustöðin krefst tæps milljarðs og va rekki meðal þeirra sem drógu málshöfðunina til baka í gær. Þar segja menn að farið verði yfir málið í dag.

Gunnlaugur Sævar, stjórnarformaður Ísfélags Vestmannaeyja, segir gagnrýnina á Alþingi ekki hafa verið ástæðuna fyrir því að málshöfðunin hafi verið dregin til baka. Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi félagsins, hafi verið búin að ákveða það.

„Hún (gagnrýnin) hafði engin áhrif því að Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins, var áður búin að beina þeirri ósk til stjórnar félagsins að hætta við þessa málshöfðun og stjórnin samþykkti það í [fyrradag],“ er haft eftir Gunnlaugi í Morgunblaðinu.

Nefnir hann að ákvörðunin hafi verið tilkynnt til eins ráðherra ríkisstjórnarinnar í fyrradag. Ísfélagið hafi boðið öðrum útgerðum að vera með í för.

Fleiri fréttir