Una Sighvatsdóttir, sérfræðingur hjá embætti forseta segir á Twitter að hún voni að við uppbyggingu á Leifsstöð að það sé haft að leiðarljósi að flugvellir mega alveg vera þæginlegir.
Heldur hún áfram: „Ekki bara ærandi skólamötuneytisstemning með volgum flöskubjór. Myndi drepa menn að bjóða eins og einn stað með þægilegum sætum? (Ekki segja Saga Lounge. Ég er ekki forsetinn.)“
Fólkið á Twitter hefur tekið vel í þetta og margir gagnrýnt Keflavíkurflugvöll fyrir vikið.
Friðjón Friðjónsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins segir: „Skítt með,sætin, hvað með svosem einn veitingastað með góðum mat?“
Siggeir Ævarsson segir: „Síðast þegar ég sá forsetann á leið í flug sat hann nú bara á Loksins í lopapeysunni!“
Smári McCharthy, fyrrum þingmaður Pírata segir: „Því miður eru flugvellir oftast hannaðir sem verslunarmiðstöðvar með geggjuðum samgöngum frekar en samgöngumiðstöðvar með góðri farþegaupplifun. Snýst allt um að halda fólki tense og skilja það við peningana sína á sem skilvirkastan hátt“