Gagn­rýna hátt verð­lag í Góða hirðinum: „Góði hirðirinn er því miður löngu hættur að vera góður!“

Mikil og heit um­ræða um hækkandi verð­lag í Góða hirðinum hefur skapast meðal með­lima Face­book hópsins Vertu á verði – eftir­lit með verð­lagi í dag, en mörgum þykir verslunin hafa hækkað verð á nokkrum vöru­flokkum meira en góðu hófi gegnir. Vísir greinir frá.

Máls­hefjandi um­ræðunnar, Brjánn Jóns­son, segist blöskra verð­lagningin á, eins og hann orðar það, „rusli annarra.“

„Ég man þegar þessu var startað og átti að vera verslun fyrir fólk sem hafði ekki mikið og gat farið og keypt sér ó­dýrt dót í heimili á einum stað. Endur- og hag­nýting í stað urðunar, á not­hæfu eins manns rusli væri annars manns inn­bú,“ segir Brjánn.

Á dögunum hafði hann farið í Góða hirðinn á­samt ein­stæðri móður, sem að hans sögn, „átti ekkert“ og hann ætlað að hjálpa henni. Versla allt á einum stað til að koma henni aftur af stað.

En þegar hann mætti á svæðið hafi honum blöskrað verð­lagningin.

„Eld­hús­borð á 20.000. Fann eins á Face­book á 5.000. Stólar x4 á 30.000. Fann eins á Face­book á 8.000.“

Hann hafi gripið til þess ráðs að yfir­gefa verslunina, fara á næsta kaffi­hús og skoða með henni Face­book og bland. Þar hafi þau verslað mest allt sem vantaði fyrir hana og dóttur hennar fyrir um 85.000.

„Miðað við verð­lagningu Góða hirðisins á rusli annarra hefðum við ekki fengið helminginn af því sem keypt var fyrir sama pening í GH Design. Hefði verið nær og örugg­lega yfir 200.000,“ segir Brjánn, og vísar þar til Góða hirðisins.

Tals­verð um­ræða skapaðist í kjöl­far inn­leggs Brjáns, en margir segjast sam­mála honum þegar kemur að verð­lagningu í Góða hirðinum.

„Nei, þetta er ekki bara þín skoðun. Verðið hefur hækkað mikið svo það borgar sig ekki að fara þarna. Ég fer mikið til Noregs og hef komið oft með dóttur minni í svona verslanir. Þar er verðið miklu lægra og gaman að koma þar,“ segir í einni at­huga­semdinni.

„Góður bis­ness í rusli annarra greini­lega og GH design að raka inn seðlum, það er að segja ef ein­hver er svo vit­laus að kaupa á þessu verði,“ segir í annarri at­huga­semd, og annar bætir við:

„Græðgin hjá Ís­lendingum er því miður alls­ráðandi. Og Góði hirðirinn, því miður hættur að vera góður.“

Fleiri fréttir