Frum­varp ferða­mála­ráð­herra standist ekki lög: „Neyt­endum ekki tryggðar fullar endur­greiðslur“

Arion banki og Ís­lands­banki segja frum­varp ferða­mála­ráð­herra um pakka­ferðir ekki standast lög um greiðslu­þjónustu eða al­þjóð­lega korta­skil­mála en frum­varpið myndi heimila ferða­skrif­stofum að endur­greiða fólki með inn­eignar­nótu í stað peninga ef pakka­ferð er ekki farin.

Í samantekt um frumvarpið á vef Alþingis segir:

„Lagt er til að ferðaskrifstofum verði heimilt að endurgreiða ferðamanni vegna pakkaferða, sem eru afpantaðar eða er aflýst og átti að fara á tímabilinu 15. mars til og með 30. júní 2020, með inneignarnótu, sem heimilt verði að innleysa að liðnum 12 mánuðum, eftir að tímabili því sem afmarkar óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður skv. 3. mgr. er lokið hafi hún á þeim tíma ekki verið nýtt.“

Lög­maður Ís­lands­banka greinir frá því í um­sögn um frum­varpið að þeir sem greiða ferð með korti eigi endur­kröfu­rétt en hann gildi að­eins í 18 mánuði.

„Al­gengt er að fólk borgi ferðir allt að ári áður en ferð er farin og margir á­kveða vís­vitandi að greiða með korti til að njóta þessara réttinda. Verði sú leið farin að af­henda inn­eignar­nótu í stað endur­greiðslu má færa fyrir því rök að gengið sé á endur­kröfu­rétt þeirra sem greiddu ferð sína með korti,“ segir í um­sögninni.

Lög­maður Arion banka tekur í svipaða strengi. „Þá er ljóst að frestur kort­hafa til að gera endur­kröfu getur verið liðinn ef miðað er við að frestur til að að inn­leysa inn­eignar­nótuna sé allt að 12 mánuðir frá og með 30. júní n.k., ef síðar kæmi upp sú staða að sölu­aðili fer þrátt fyrir úr­ræði þetta í gjald­þrot eða rekstrar­stöðvun.“

Þá segist Arion banki taka undir sjónar­mið Neyt­enda­stofu um að neyt­endum sé ekki tryggðar fullar endur­greiðslu í sam­ræmi við þau lög og skil­mála sem í gildi voru þegar kaup áttu sér stað.

Umsögn Arion banka.

Umsögn Íslandsbanka.

Fleiri fréttir