Gætu tryggt öryrkjum stuðning fyrir þann pening sem fer í að fjölga ráðuneytum

Helga Vala Helgadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, segir í grein í Morgunblaðinu í dag að lítið hafi komið fram um tilgang þess að fjölga ráðherrum um tíu í tólf. Hún segist ekki vera á móti breytingum innan stjórnarráðsins en kallar eftir því að slíkar breytingar séu gerðar á faglegum grunni.

„Á Alþingi í vikunni kynnti forsætisráðherra tillögu sína um að fjölga ráðherrum um einn, fjölga ráðuneytum um tvö og breyta svo málaflokkum 10 ráðuneyta af 12. Þingmenn stjórnarandstöðu gerðu sitt til að laða fram svör við því hver tilgangurinn væri með þessari stærstu uppskiptingu á Stjórnarráðinu í áratugi, en lítið var um svör um tilganginn,“ segir Helga Vala í greininni.

Hún segir að aðgerðin muni kosta stjórnarráðið hundruð milljóna.

„Lýsti forsætisráðherra því yfir í umræðu á Alþingi að kostnaður við það eitt að búa til tvö ný ráðuneyti yrði líklega um 450 milljónir króna, þessi fjárhæð inniber ekki kostnað við flutning verkefna milli ráðuneyta. Fyrir 450 milljónir má gera margt í þágu almennings, t.d. er þetta helmingur af því sem það myndi kosta að tryggja öryrkjum stuðning nú fyrir jólin skatta- og skerðingarlaust eins og gert var í fyrra.“

Hún bendir á að í tíð Jóhönnu Sigurðardóttur, þegar ráðuneytum var fækkað, var það gert á grundvelli skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem mælti eindregið með fækkun ráðuneyta.

„Fækkun svo hægt væri að fækka hindrunum og auka samvinnu þar sem hennar er þörf. Farið var í mikla undirbúningsvinnu fjölmargra starfshópa innan stjórnkerfisins svo þessi breyting kæmi best út fyrir almenning og starfsfólk ráðuneyta. Var sérstaklega tekið fram að grundvöllur þess hversu vel tókst til væri sú staðreynd að breytingin væri unnin í nánu samráði við starfsfólk Stjórnarráðsins sem best þekkir til innri starfa ráðuneytanna. Hlutverk Stjórnarráðsins er að þjónusta almenning og það verður að vera alveg skýrt í hugum almennings hvert á að leita og hvernig þessi uppstokkun á að þjóna almenningi.“

Greinina er hægt að lesa hér.

Fleiri fréttir