Fyrrverandi ráðherrann Kristján Þór Júlíusson hefur fundið sér nýtt starf eftir að þingmennsku lauk, en hann er nú afleysingjaskipstjóri á hvalaskoðunarskipinu Hólmasól á Akureyri. Hann greinir frá þessu í viðtali við mbl.is.
Kristján Þór dró sig í hlé frá stjórnmálum eftir síðustu alþingiskosningar, en í samtali við Fréttablaðið sagðist hann hlakka til þess að hafa meira frelsi og ráða meira tíma sínum og verkefnum. Hann hafði starfað sem alþingismaður í Norðausturkjördæmis fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins á árunum 2007 til 2021 og gegndi ýmsum ráðherraembættum.
Nú hefur hann fundið sér nýtt starf, allavegana í smá tíma, þar sem skipstjórinn og útgerðarstjórinn Arnar Sigurðsson frá Húsavík vantaði skipstjóra í vor til að taka staka túra á hvalaskoðunarskipinu Hólmasól. Kristjáni Þór leyst greinilega vel á starfið og stökk á tækifærið að komast aftur á sjóinn, en hann starfaði síðast sem stýrimaður og skipstjóri fyrir 37 árum.
„Hér í Eyjafirði er annað slagið mikið af hval og síðustu vikur hefur tæpast komið sá túr að við sjáum ekki skepnur,“ segir Kristján Þór. „Hrefnur eru stundum hér frá Oddeyri við Akureyri og út eftir firði. Hnúfubakurinn er svo um þessar mundir nærri Hrísey og Grenivík og þar utar,“ segir Kristján við mbl. Hann segir að ferðirnar hafi gengið vel og hann hafi haft gaman af því að kynnast starfsfólkinu.