Fyrrverandi landsliðsmaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur hlotið þriggja mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir líkamsárás gagnvart tengdaföður sínum. Þá var hann einnig dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot.
Á vefsíðuFréttablaðsins kemur fram að líkamsárásin varði atvik sem átti sér stað aðfaranótt laugardagsins 5. febrúar 2022. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa tekið tengdaföður sinn hálstaki við útidyrahurð á heimili tengdaföðursins með þeim afleiðingum að hann féll í jörðina. Þá kemur fram í ákæru að fyrir vikið hafi tengdafaðirinn hlotið ýmsa áverka.
Fyrir dómi sagði maðurinn að umrætt kvöld hefði verið hringt í hann og honum sagt að ástandið á heimili tengdaforeldrana væri ekki gott vegna áfengisneyslu. Þar voru börnin hans í pössun. Hann sagðist því hafa hringt á lögreglu og óskað eftir því að hún færi á staðinn, en honum sagt að hann sem forráðamaður þeirra skildi fara þangað sjálfur.
Hann fór með leigubíl á vettvang og sagðist hafa séð tengdaföðurinn áfengisdauðann inni í húsinu. Hann vildi síðan meina að hann hefði bankað ítrekað og tengdapabbinn vaknað á endanum, farið út og kallað hann öllum illum nöfnum, og síðan reynt að slá sig í andlitið þrisvar sinnum.
Sjálfur sagðist hann hafa reynt að stöðva tengdaföðurinn, með því að grípa hann skrokktaki, en ekki hálstaki. Hann vildi meina að hann hefði gert það í sjálfsvörn og verið með hann í takinu þangað til lögregla kom á vettvang.
Í skýrslutöku hafði tengdafaðirinn útskýrt að maðurinn væri að skilja við dóttur sína, og að það væri ekki að ganga vel. Fyrir dómi játaði hann að hann hefði neytt áfengis umrætt kvöld, drukkið bjór og viskí. Um miðnætti hefði hann verið búinn að svæfa börnin og heyrt læti fyrir utan húsið.
Þar hafi faðir barnanna verið kominn, sem ýtti við honum. Sjálfur hafi hann útskýrt að hann hefði svæft son hans en þá hafi maðurinn ráðist á hann, tekið hann hálstaki og fyrir vikið hafi hann eiginlega misst meðvitund. Hann sagðist gruna að maðurinn væri undir áhrifum læknadóps.
Dómnum þótti framburður tengdaföðurins og annara vitna, sem og vottorð læknis færa sönnur fyrir því að maðurinn hefði gerst sekur um háttsemina sem honum er gefið að sök.
Maðurinn á sakaferill aftur til ársins 1985 og hefur frá árinu 2010 ítrekað hlotið dóma fyrir ýmis brot líkt og rán, húsbrot, líkamsárás og fíkniefnalagabrot. Líkt og áður segir er hann fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu.