Fundu bíl í höfninni í Hafnafirði

Lögreglan, auk kafara frá Landhelgisgæslunni, eru nú við störf við Óseyrarbryggju í Hafnarfirði í kvöld en þar fannst bíll sem lögreglan hefur leitað að í tengslum við leitina að Almari Yngva Garðarssyni.

„Ég get staðfest að við vorum að finna bíl sem við erum búin að vera að leita að,“ segir Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við Fréttablaðið í kvöld.

Leitin að Almari Yngva hefur staðið frá því í gær en þá lýsti lögreglan eftir honum og bíl sem hann hafði til umráða. Skúli gat ekki tjáð sig frekar um vinnu lögreglunnar á vettvangi en átti von á því að send yrði út tilkynning síðar.

Fleiri fréttir