Fullir Íslendingar á Tenerife vekja reiði netverja: „Ekki góðar minningar fyrir börnin.“

„Ekki vera fá­viti,“ segir Kol­brún Jóhanns­dóttir í inn­leggi á Face­book­hópinn tenerife tips.

Hún segist hafa séð til ís­lenskrar fjöl­skyldu sem var stödd á amerísku ströndinni, þar sem móðirin var sauð­drukkin og pabbinn slafrandi að rífa kjaft við leigu­bíla­kall.

„Eldra barnið grátandi, tvö yngri gerðu sitt besta í að halda mömmunni uppi,“ skrifar Kol­brún og biðlar að lokum til fólks að skilja börnin sín eftir heima ef foreldrar geta ekki hagað sér. „Ekki góðar minningar fyrir börnin.“

Fólk í kommenta­kerfinu er ekki sátt með þessa hegðun for­eldrana og láta vita af reiði sinni.

Íris Rut segir: Elsku börnin. vona inni­lega að for­eldrarnir sjái þetta hér og taki sig veru­lega á!!

Rakel Lilja segir að á­fengis­neysla for­eldra og börn eigi aldrei sam­leið.

Þegar þessi frétt er skrifuð hefur færslunni verið eytt úr hópnum.

Fleiri fréttir