Bryndís Haraldsdóttir alþingiskona, Andrés Ingi Jónsson alþingismaður og Bára Huld Beck blaðamaður ræddu kynferðisofbeldi. #metoo og afsagnir viðskiptaforkólfa í Sprengisandi í morgun.
Í nýliðinni viku féllu valdamenn í viðskiptalífinu hver af öðrum vegna ásakana um kynferðisbrot. Bryndís, Andrés og Bára Huld segja frábært að viðskiptalífið hafi brugðist en að viðbrögðin hefðu átt að koma miklu fyrr.
Bára Hulda Beck, blaðamaður á Kjarnanum, benti á að frásögn Vítalía Lazareva hafi komið fram í haust en fyrirtæki mannanna sem voru sakaðir um kynferðisbrot vildu lítið sem ekkert tjá sig um málið og virtust ætla sitja af sér storminn.
„Þau taka ekki afstöðu hvort þau eigi að skoða þetta eða gera eitthvað. Þau ætla í rauninni að bíða þetta af sér. Ef þetta færi í fjölmiðla ætluðu þau að bregðast við. Ef þetta færi ekki í fjölmiðla ætluðu þau ekki að bregðast við.“
„Það er jákvætt að samfélagið er að bregðast við,“ sagði Bryndís sem telur þetta stórt skref að mennirnir væru að fara frá störfum eða í leyfi og þar með axla einhverja ábyrgð.
Bryndís tekur fram að hún styðji ekki útilokunarmenningu og að hún vilji að menn sem brjóti á öðrum eigi afturkvæmt í samfélagið. Það myndi hvetja gerendur til að stíga fram og taka ábyrgð.
„Við verðum að hætta að líta á þetta sem bylgjur því þá geta fyrirtæki reynt að sitja af sér einhverja bylgju og leyfa mönnunum að sitja áfram,“ sagði Andrés en hann telur of mikið álag sett á þolendur.
„Það er ólíðandi að við séum að setja þessar kröfur á þolendur að til þess að samfélagið batni þurfi þolendur að rífa upp aumar tilfinningar, til að ráðamenn hlusti.“