Fóru með á­fengis­mæli á Jóm­frúna

Sýningin Mátulegir, sem var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í gær og er byggð er á dönsku kvikmyndinni Druk, fjallar um fjóra lífsleiða menntaskólakennara sem ákveða að sannreyna tilgátu norsks heimspekings um að manneskjan sé fædd með hálfu prómilli of lítið af áfengi í blóðinu. Kennararnir drekka áfengi til að halda réttu áfengismagni í blóðinu og eins og við er að búast fer ekki allt eins og það á að fara.

Hilmir Snær Guðnason, Jörundur Ragnarsson, Halldór Gylfason og Þorsteinn Bachmann fara með hlutverk kennaranna fjögurra í sýningunni.

Mynduð þið treysta ykkur í að prófa þetta?

Halldór: Við höfum prófað þetta.

Hilmir: Já, við fórum í rannsóknarvinnu, við fórum á Jómfrúna og fengum okkur að borða og vorum með áfengismæli með okkur til að sjá hvaða áhrif þetta hefði á okkur, hvenær við værum með 0,5 í blóðinu og hvenær við færum hærra.

Þurftuð þið allir jafnmikið til að ná 0,5?

Hilmir: Nei, það var eitthvað misjafnt eftir mönnum.

Allir skella þeir upp úr og Halldór segir að sumir hafi þurft minna en aðrir.

Hilmir: Já, það var þannig en þetta var mjög góður dagur og hann skilaði miklu.

Jörundur: Já, svo vorum við svona að lesa handritið og tékka hvernig þetta hljómaði með 0,5 prómill og hversu miklu munaði þegar maður var kominn í 0,7 prómill og svo leystist þetta bara upp í trúnó og vitleysu.

Fleiri fréttir